Mér er sannur heiður að kynna fyrstu 5 bjóranna sem munu berjast um titilinn Veiðibjórinn 2008. Fyrirkomulagið verður með því sniði að við munum kynna til leiks þá sem tilnefndir eru. Lesendur mega koma með tilnefningar en þá er óskað eftir því að við hvern bjór sé komið með plúsa og mínusa fyrir því að hann verði valinn. Það eru nokkrir hlutir sem hafa þarf í huga þegar við veljum veiðibjórinn. Við erum að leita að bjór sem við ætlum að drekka við veiðarnar og því þarf hann að henta við það. Við höfum enn ekki sötrað kippu af Orval eða Chimay við árbakkann. Því þarf bjórinn að geta hentað í veiðidrykkju og vera léttur í maga og ekki of sterkum. Einnig má hann ekki vera of dýr því eins og við vitum þá eru veiðileyfin alveg nógu dýr.
Númer 1: Löwenbrau

Þetta er bjórinn sem var afar nálægt því að vera valinn í fyrra. Í fyrra var ritað Þessi sögufrægi bjór er tilvalin í veiðina. Þar sem hann er bruggaður eftir Bavarískum hefðum (skv. hreinleikalögunum frá 1516) í Munchen og er hann mjög bragðmikill og telst í hópi lagerbjóra. Helsti kostur Löwenbräu liggur í því að þrátt fyrir hans þétta og maltaða bragð, er hann mjög léttur og því hægt að drekka tiltölulega mikið af. Löwenbräu er sterkur kandídat því hann hefur hefðina í vopnabúri sínu; rekur sögu sína til 1383 og hefur verið seldur á óktóberfest síðan 1810.
Jákvætt: Topp bjór og alls ekki þungur í maga.
Neikvætt: Sama og í fyrra. Hann fæst ekki í gleri og einungis í 500ml. Hann er einungis seldur í tveim búðum og því ekki hægt að nálgast hann hjá öllum bestu ám landsins.
Númer 2: Samuel Adams

Það eru miklir fordómar gagnvart Bandarískum bjórum. Sam Adams er þó allt annar hlutur en Bud, Coors og Miller. Sam Adams er commercial útgáfan af þeim frábæru micro brewery bjórum sem finna í USA.
Jákvætt: Karamellu maltaða bragðið ætti að vera nóg til að koma honum í undanúrslit (eða hvað?) en kostirnir eru fleiri. Hann má fá í þrem útgáfum í ÁTVR. Hefðbundinn, Black Lager og Boston Ale. Hann kemur í 355ml gleri sem hæfileg stærð. Einnig fæst hann í öllum góðum vínbúðum.
Neikvætt: Sam Adams er ekki ódýr bjór. Kippan er að detta í 1440 krónum.
Númer 3: Kaldi

Kaldi er klárlega besta framtak landsbyggðarinnar til bjórgerðar hingað til. Kaldi er þess vegna vel að því kominn að vera tilnefndur til Veiðibjórsins 2008. Hann er bruggaður eftir tékkneskum sið en Sal Bass valdi einmitt tékkneskam bjór sem Veiðibjórinn 2006. Nú er spurning hvort íslensk-tékkneskur geti hampað titlinum.
Jákvætt: Gott verð miðað við gæði, fæst í gleri og er til í tveim tegundum ljós og dökkur.
Neikvætt: Það er svo sem ekkert neikvætt nema kannski fyrir dósaplebbana en þá fæst Kaldi bara í gleri.
Númer 4: Egils Premium

Ég hafði mínar efasemdir um Egils Premium. Egils að gera ,,gæða lager” ? og úr íslensku byggi ? Hann hefur þó reynst vera ágætis bjór og er góðu verði. Fæst í dós og gleri og eflaust í hverri einustu vínbúð á landinu.
Jákvætt: Gott verð, fæst víða, dós og gler, íslensk bygg.
Neikvætt: Nýja ljóta logoið hjá ölgerðinni er klárlega ekki að gera sig.
Númer 5: Bavaria

Það er eitt sem Bavaria hefur fram yfir alla hina. Hann fæst í 25cl flöskum. En það er ekki allt, hann er með skrúfutappa. Ég get samt ekki hætt að minnast á 25centilítrana. Það merkir að meðal íslendingurinn geti fengið sé 2 kalda út í ánni og samt keyrt upp í hús. Bavaria á það líka til að vera skít ódýr. En það er ekki allt heldur fæst hann í stórri dós, lítilli dós, stóru gleri og litlu gleri.
Jákvætt: Úrval, fáanleiki, verð.
Neikvætt: Hann er ekki sá besti en langt frá þvi að vera vondur.
Þetta eru fyrstu 5 sem tilnefndir eru en seinni hlutinn kemur inn á næstu vikum.
f.h. Veiðibjórnefndar Sal Bass
Jóakim